Einleikurinn byggist á Skottu sem er alþýðudraugur, hún gengur með
gestum um Hólastað og segir þeim þjóðsögur sem byggjast á dekkri hliðum
menningararfsins, þar sem harmleikir, þjáningar og dauðsföll
hafa átt
sér stað.
Skotta getur verið mjög ókurteis, andstyggileg,
orðljót og stríðin því viljum við vara við því að börn séu send ein á
sýninguna. Foreldrar gætið barna ykkar !
Leiksýningin fer fram
utandyra og því best að klæða sig eftir veðri.
Sýningin hefst fyrir
utan Hólaskóla og sýningartíminn er 30-40 mín.
Sýningar verða dagana 22., 24. og 28.apríl kl.20:00
Sæluverð kr.
1.000-
Miðapantanir og nánari upplýsingar í síma 898 9820
Skottfríður Jósafratsdóttir heiti ég....þið verðið að afsaka helvítis umboðskonuna mína sem stofnaði þetta bévítans blogg. Nú vill litla snobbhænan að ég skrifi einhver vel valin orð inn á þetta apparat!
Held að það sé ráðlegast að segja ykkur frá því hvernig okkar ömurlega samstarf byrjaði. En þannig var að hænan byrjaði að vinna á Hólum í Hjaltadal árið 2004, við að þjónusta einhverja túrista og helvítis gæda, sem þykjast vita allan andskotann, gædar eru svona svipuð heilalaus kvikindi eins og ferðamálafræðingar!
Þetta sumar var friðurinn úti hjá mér þar sem ég var búin að eiga unaðslegan fegurðarblund í þúsund ár. Þið haldið kannski fíflin ykkar að draugar sofi ekki eða geti ekki dreymt eitthvað mergjað... Mig dreymdi að Galdra-Loftur væri komin til mín og ég hefði sagt honum að éta skít þar sem að hann vildi ekkert með mig hafa, sjálfa fegurðardís Skagafjarðar. Já helvítis focking fock....éttu skít drjóli...
En sem sagt þessi djöfulsins hæna átti að leika draug í einni óvinsælustu leiksýningu á Íslandi, vafra um heilaga staðinn og segja sögur. Auðvitað gat hún ekki leikið litla fíflið. Þannig að hún tók það ráð að vekja MIG, kuklaði saman eitthvað galdraseiði og hélt að það myndi nú fá mig til að vakna, sönglandi einhverja helvítis galdraþulu. Að sjálfsögðu tókst þetta galdraseiði ekki hjá henni,  þessi bölvaða hænudrós sönglaði svo falskt og illa að ég gat nú  ekki annað en vaknað við þessi viðbjóðslegu óhljóð. Hvar í fjandanum fékk gæran þessi raddbönd??